Psalms 86

1Davíðs-bæn. Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig, því að ég er hrjáður og snauður. 2Vernda líf mitt, því að ég er helgaður þér, hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér. 3Ver mér náðugur, Drottinn, því þig ákalla ég allan daginn. 4Gleð þú sál þjóns þíns, því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína. 5Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig. 6Hlýð, Drottinn, á bæn mína og gef gaum grátbeiðni minni. 7Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig, því að þú bænheyrir mig. 8Enginn er sem þú meðal guðanna, Drottinn, og ekkert er sem þín verk. 9Allar þjóðir, er þú hefir skapað, munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt. 10Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk, þú einn, ó Guð! 11Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. 12Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn, af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu, 13því að miskunn þín er mikil við mig, og þú hefir frelsað sál mína frá djúpi Heljar. 14Ofstopamenn hefjast gegn mér, ó Guð, og hópur ofríkismanna sækist eftir lífi mínu, eigi hafa þeir þig fyrir augum. 15En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð, þolinmóður og gæskuríkur og harla trúfastur. 16Snú þér að mér og ver mér náðugur, veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar. 17Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir, að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.
Copyright information for Icelandic